Harpa - Tónlistar og ráðstefnuhúsið í Reykjavík

Sígild íslensk tónlist

í Hörpunni í allt sumar

Á tónleikum okkar í Hörpunni í sumar fá áheyrendur að kynnast sígildri íslenskri tónlist. Við flytjum ykkur perlur íslenskra sönglaga, raddsett þjóðlög, sálma og ættjarðarsöngva. Þá kynnumst við tónlistinni í verkum og ævi Halldórs Laxness og flytjum dagskrá um konur og íslenska tónlist. Auk söngs er leikið á píanó, gítar, steinhörpu og langspil. Um er að ræða 5 mismunandi tónleikadagskrár sem fluttar verða í allt sumar. Flytjendur koma úr röðum ungs íslensks tónlistarfólks og hafa margir þeirra fengið mikið lof fyrir flutning sinn, bæði innan lands og utan. Kynningar eru á ensku til að auðvelda erlendum gestum okkar að kynnast sígildri íslenskri tónlist. Fyrstu tónleikarnir verða 10. júní.

 

Listrænn stjórnandi Classical Concert Company Reykjavík er Bjarni Thor Kristinsson bassasöngvari.

5 MISMUNANDI TÓNLEIKADAGSKRÁR

Fluttar verða nokkrar af helstu perlum íslenskra einsöngslaga, sögur af tilurð þeirra sagðar og tónskáld kynnt. Á efnisskrá eru lög allir Íslendingar þekkja eins og Draumalandið, Í fjarlægð, Á Sprengisandi og Maístjarnan.

 

 

 

 

 

7. september

Fjóla Kristín Nikulásdóttir - sópran

Jón Svavar Jósefsson - barítón

Ingileif Bryndís Þórsdóttir -píanóleikari

 

14. september

Nathalía Druzin Halldórsdóttir - mezzosópran

Hjörleifur Sigurðsson - tenor

Birna Hallgrímsdóttir - píanóleikari

 

Miðasala

Félagar úr sönghópnum Voces Masculorum syngja þjóðlög, ættjarðarsöngva og sálmalög undirleikslaust. Þeir syngja líka nokkur erlend lög sem Íslendingar hafa eignað sér. Þá er farið með rímur og leikið á langspil.

1. tenór:

Hlöðver Sigurðsson

Skarphéðinn Þór Hjartarson

 

2. tenór:

Pétur Björnsson

Örn Arnarson

 

1. bassi:

Egill Gunnarsson

Jóhann Baldvinsson

 

2. bassi

Bragi Jónsson

Hjálmar P. Pétursson

 

Miðasala

Söngkona og syngjandi gítarleikari taka áhorfendur með í ferðalag frá fornum fimmundarsöng til dægurlaga nútímans með nokkrum vel völdum viðkomustöðum.

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Hildigunnur Einarsdóttir - söngur

Örn Arnarson - gítar og söngur

 

Miðasala

Mörg af þekktustu íslensku sönglögunum eru samin við ljóð og texta nóbelskáldins. Í þessari dagskrá kynnumst við ævi og verkum Halldórs Laxness í gegnum þessi lög en tónlist var einn af stærstu áhrifavöldunum í lífi hans.

 

 

 

 

 

 

 

10. september

Thelma Hrönn Sigurdórsdóttir - sópran

Hildigunnur Einarsdóttir - mezzósópran

Ástríður Alda Sigurðardóttir - píanóleikari

 

Miðasala

Tónskáld, ljóðskáld eða viðfangsefni? Þessi dagskrá er um konur í íslenskri tónlist.

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Hallveig Rúnarsdóttir - sópran

Eyrún Unnarsdóttir - mezzósópran

 

Ástríður Alda Sigurðardóttir - píanóleikari

 

Miðasala

Nánari upplýsingar
í síma 65 95 669
eða sendu okkur tölvupóst